Fara beint í efnið
Blóðbankinn Forsíða
Blóðbankinn Forsíða

Blóðbankinn

Skráning á stofnfrumugjafaskrá

Stofnfrumugjafaskrá er listi yfir einstaklinga sem eru tilbúnir að gefa hluta af sínum blóðmyndandi stofnfrumum (haematopoietic stem cells) til sjúklinga sem þurfa á þeim að halda.

Nauðsynlegt er að hafa marga blóðgjafa á stofnfrumugjafaskrá því breytileiki vefjaflokka er mikill og fjöldi samsetninga þeirra skiptir milljónum. Nánar um stofnfrumur og stofnfrumusöfnun.

Vilt þú skrá þig á stofnfrumugjafaskrá?

Blóðgjafar á aldrinum 18-40 ára geta orðið stofnfrumugjafar. Þú getur verið á skránni til 55 ára aldurs en þá dettur þú sjálfkrafa af skránni.

Þú getur skráð þig á stofnfrumugjafaskrá í Blóðbankanum við næstu heimsókn. Taka verður blóðprufu til vefjaflokkunar og flokkunin er skráð í skrána.

Hentugur stofnfrumugjafi

Besti stofnfrumugjafinn er systkini sjúklingsins með sömu vefjaflokkun. Almennt eru um 30% líkur á að finna stofngrumugjafa í fjölskyldu sjúklings. Ef ekki finnst gjafi með sömu vefjaflokkuninnan fjölskyldu verður sjúklingur að fá stofnfrumur frá óskyldum gjafa með sömu vefjaflokkun.

Leitað er á stofnfrumugjafaskráð í öllum heiminum en meiri líkur eru á að finna gjafa meðal fólks af sama uppruna. Því er mikilvægt fyrir íslenska sjúklinga að hægt sé að leita að gjafa meðal Íslendinga og auka þannig líkurnar á að gjafi finnist.

Um stofnfrumugjafaskrána

Blóðbankinn er í samstarfi við norsku stofnfrumugjafaskrána, The Norwegian Bone Marrow Donor Registry (NBMDR). Einnig eru upplýsingarnar skráðar hjá Bone Marrow Donors Worldwide (BMDW).