Frétt
07. 05 2019
Til baka
Blóðbankinn á ferð og flugi í maí
Nú er Blóðbankinn á ferð og flugi um allt land. Í þessari viku erum við með Blóðbankabílinn á Snæfellsnesi.
Svo förum við á Ísafjörð, Austurland og til Vestmannaeyja. Norðurlandið rekur svo lestina í þessum vorferðum okkar.
Skoðið endilega áætlun Blóðbankabílsins. Þar er hægt að sjá opnunartíma og nánari staðsetningar.
Allir velkomnir nýir sem vanir blóðgjafar.
Til baka