Frétt
Blóðsöfnunardagur Neistans 09. febrúar
Fimmtudaginn 9. febrúar mun Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna hvetja landsmenn sérstaklega til að gefa blóð.
Hjartabörn hafa býsna mörg þurft að nota þjónustu Blóðbankans og vilja aðstandendur þeirra, þakka fyrir sig með því að gefa blóð og hvetja aðra til að gefa.
Blóðsöfnunin stendur allan daginn, opið frá kl.08:00 -19:00.
Léttar veitingar verða í boði Blóðbankans.
Barnapössun, andlistsmálun og blöðrur, milli kl. 14:00 og 18:00.
Til baka