Frétt
Gleðilegt sumar og gleðifréttir
Gleðilegt sumar kæru blóðgjafar og takk fyrir veturinn.
Við færum gleðifréttir í byrjun sumars. Blóðgjafar með ofnæmi takið eftir:
Flest algeng ofnæmi (t.d. vegna frjókorna, fæðu, dýra) valda ekki frávísun. Áður var bið á blóðgjöf eftir töku andhistamínlyfja. Nú hefur orðið breyting á þessum reglum. Andhistamínlyf í hefðbundnum skömmtum hindra ekki endilega blóðgjöf, en viss lyf sem notuð eru við meðhöndlun ofnæmis geta þó áfram valdið frávísun. Sjá nánar á: https://blodgjafi.is/1075
Til baka