Frétt
Vantar blóð í öllum blóðflokkum
Vikan hefst með minni blóðbirgðum en æskilegt er og framundan er löng ferðahelgi. Við biðlum því til blóðgjafa að koma til okkar í þessari viku. Við þurfum blóð í öllum blóðflokkum. Ver hefur gengið en vanalega að ná í blóðgjafa undanfarið þar sem margir eru á faraldsfæti.
Hægt er gefa bæði á Snorrabrautinni í Rvík og á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Opið er á Snorrabrautinni : Opið er á Akureyri:
mánud. 11-19 mánud.-fimmtud. 08:15-15:00
þriðjud. 08-15 lokað á föstud.
miðv. 08-15
fimmtud. 08-19
lokað á föstud.
Til baka