Frétt
29. 08 2019
Breytingar á reglum varðandi nokkur lyf
Í Blóðbankanum er alltaf verið að endurskoða reglur og nú hafa reglur breyst varðandi nokkur lyf.
Nú mega þeir gefa blóð sem:
- eru með vanstarfssemi í skjaldkirtli og lyfjaskammti ekki verið breytt síðustu 6 mánuði https://blodgjafi.is/1256
-
hafa greinst með háan blóðþrýsting sem er undir góðri stjórn á ákveðnum blóðþrýstingslyfjum og lyfjaskammti ekki verið breytt síðustu 4 vikur https://blodgjafi.is/1088
- Einnig hafa ýmis væg þunglyndislyf bæst í hóp þeirra lyfja sem má gefa blóð á https://blodgjafi.is/1192