Hlutverk og stefna
Hlutverk
- Hlutverk Blóðbankans er að veita örugga blóðbankaþjónustu á landsvísu.
Einnig veitir Blóðbankinn þjónustu vegna fruma og vefja, líffæraflutninga og stofnfrumumeðferðar.
Þjónustan skal vera fagleg og einkennast af öryggi, gæðum og vilja til framfara.
- Blóðbankinn stuðlar að nýjungum og framförum með kennslu og
rannsóknum á sínu starfssviði og með samstarfi við erlenda og innlenda aðila.
- Blóðbankinn hefur mikilvægu hlutverki að gegna varðandi kynningu og fræðslu
til almennings og blóðgjafa um blóðbankastarfsemi.
Stefna
- Blóðbankinn stefnir að því að vera í hópi bestu blóðbanka í alþjóðlegum samanburði og í
fararbroddi íslenskrar heilbrigðisþjónustu á sviði gæða og framfara.
- Blóðbankinn setur örugga og góða þjónustu í öndvegi.
Blóðbankinn vill tryggja velferð blóðgjafa með fagmennsku og markvissri miðlun
upplýsinga. Í Blóðbankanum er virkt gæðakerfi, grundvallað á alþjóðlegum
kröfum, sem tryggir rétt vinnubrögð, gæði og öryggi í framleiðslu og þjónustu.
- Blóðbankinn vill skapa aðlaðandi andrúmsloft fyrir blóðgjafa og almenning og
stuðla að auknu heilbrigði þeirra. Blóðbankinn framleiðir blóðhluta og veitir
þjónustu sem miðar að því að mæta þörfum viðskiptavina sinna.
Með fræðslu til samfélagsins vill Blóðbankinn skapa traustvekjandi umgjörð um
starf sitt.
- Blóðbankinn leggur áherslu á öflugar grunnrannsóknir sem stuðla að framförum
og leggja grunninn að nýjungum og bættri þjónustu.
- Blóðbankinn ætlar að skapa örvandi og áhugavert starfsumhverfi og um leið laða
til sín hæft starfsfólk sem tekur þátt í mótun og þróun starfsins.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Advania