Sértæk blóðsöfnun

Í sértækri blóðsöfnun eru notaðar vélar við söfnun einstakra blóðhluta. Blóði er dælt inn í vélina sem skilur frá þann blóðhluta sem safna á en það sem eftir er fer aftur til blóðgjafans.

Í sértækri blóðsöfnun fer fram söfnun á rauðum kornum, blóðflögum og blóðvökva.

Helstu kostir við sértæka blóðsöfnun eru:

  • Við lok blóðtöku eru blóðhlutar tilbúnir og þurfa ekki að fara til frekari vinnslu
  • Sjúklingur getur fengið tvær einingar úr sama gjafa
  • Auðveldara að svara eftirspurn eftir ákveðnum blóðhlutum
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Advania