Um Blóðbankann
Blóðbankaþjónustunni er ætlað að tryggja nægilegt magn blóðhluta á hverjum tíma og uppfylla kröfur um öryggi þeirra.
Blóðbankinn:
- Gerir prófanir til að tryggja að samræmi sé milli þeirra blóðhluta sem gefnir eru og blóðþega.
- Heldur uppi reglubundnu eftirliti með framleiðslu sinni til að tryggja að hún sé samkvæmt innihaldslýsingu.
- Sér um þann hluta mæðraeftirlits sem snýr að blóðflokkun og eftirliti með myndun mótefna gegn rauðum blóðkornum.
- Stundar rannsóknir vegna sjúkdóma af ónæmisfræðilegum uppruna og tekur þátt í rannsóknum á þróun á lækningu tiltekinna sjúkdóma.
- Hefur yfir að ráða starfsmönnum með sérhæfðra rannsóknar- og læknisfræðilega þekkingu og aðstöðu sem sniðin er að hlutverki blóðbankaþjónustunnar.
Blóðbankinn:
- Vill veita sjúkrastofnunum bestu þjónustu sem völ er á hverjum tíma.
- Er með starfstöðvar í Reykjavík við Snorrabraut 60 og í Sjúkrahúsinu á Akureyri.
- Leitast við að afgreiða pantanir og erindi sem til hans berast frá sjúkrastofnunum tímalega og á sem nákvæmastan hátt .