Vísindarannsóknir
Blóðbankinn rekur öflugt grunnrannsóknstarf á sviði stofnfruma, vefjaverkfræði og blóðbankafræði. Því starfi er stýrt af Ólafi E. Sigurjónssyni, doktor í stofnfrumulíffræði. Markmið með slíku rannsóknarstarfi er að reyna að brúa bilið á milli tilraunavísinda og læknisfræðilegra rannsókna til að skapa jarðveg fyrir innleiðingu á nýjungum í læknisfræði á sviði stofnfruma, vefjaverkfræði og blóðbankafræði á Íslandi.
Að rannsóknunum koma starfsmenn Blóðbankans og fleiri starfseininga á Landspítala, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík auk fjölda annara innlendra og erlendra samstarfsmanna.